Átakasíða Einars
13.03.2011 00:50:35 / efv

Fluttur

Nenni ekki að vera hérna. Fluttur á jarnkarl.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2011 09:58:46 / efv

Krómuð línubil

Er þetta betra? Er þetta verra? Það er spurning.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2011 23:02:09 / efv

Enn eitt upphafið

Nýtt lúkk og svona. Vonandi virka línubilin, það er alveg glatað að hafa allt í einni hrúgu. Fékk ódýrt en vonandi gott tweak á vinstri öxlina fyrir nokkrum vikum síðan og hef þurft að halda mig til hlés síðan. Hef aðeins sest á þrekhjól en annað ekki. Snaraði mér á brettið í kvöld og ætlaði að gormast einhvern rólegan púlshálftíma. Jebb, einmitt. Upphitun og síðan setti ég grjót á inngjöfina. 5km PB 19:32 og ég alveg sprunginn, Búmm! Ekkert andað í allan þennan tíma og svo á bara allt að virka. Yeah right. Eftir fína lyftingaæfingu á sunnudag er ég ennþá með aum læri og svona það sem til fellur. Frábært alltaf að vera að komast í gang og finna strengi og eymsli. Nýja hjólið komið og voða gaman að hafa það til sýnis í búðinni en af óskráðum ástæðum er lítill neisti í mér og veit ég ekki hvort hann nær að kveikja þann eld sem til þarf. Það var reyndar gaman að hlaupa í kvöld en samt. Skil ekkert í mér að gera síðuna græna þar sem blár hefði verið meira við hæfi. Nýr sjúkraþjálfari í fyrramálið þannig að það er vissara að mæta á réttum tíma.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2011 21:35:53 / efv

Púlsþjálfun

Hef verið að æfa samkvæmt púls með nokkrum útúrdúrum undanfarið. Frábært að hlaupa í 55 mín á bretti samkv. plani og fara síðan í 14 mín hratt tempo (15,4) án þess að hafa fyrir því. Hrikalega gaman. Djöfull eru Alice in Chains nú gott band, ójá. Gerði þetta sem sagt á miðvikudagskvöld. Pávereid á fimmtudagskvöld. Nennti eiginlega ekki en lét mig hafa það. Djöfull er ég alltaf svangur. Var ákveðinn í að fylgja reglum og fara ekki yfir leyfilegan púls. Stutt skref, uppréttur, djúp öndun! Fokk ég var eins og virðuleg maddamma á kvöldgöngu fyrir utan að ég var á meðal pace 4.17. Strekkingur á kortunum en alls ekki sem verst veður. Verð að mæla með What the Hell have I með Alice. Ljómandi frábært alveg. Skemmtileg samæfing síðasta sunnudag. Vorum níu á Trainer í Heilsukvos Maríu Agnar, flott aðstaða fyrir hvað sem er. Vorum tvo og hálfan að og mig verkjaði Big Time í klofið eftir ósköpin. Harðsperrur í lærum daginn eftir. Gott mál. Corinna að reyna að telja í mig kjark með sundið. Synda oft og vel. Ég hlýt að geta lært þetta eins og aðrir. Fórum í Kópavoginn í kvöld. Syntum rúma 2 á ótrúlega löngum tíma. Ég vildi að ég hefði verið svona vel stemmndur í Þorlákssundinu. Well. Ljóta fokkið með línubil í þessu bloggi hérna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2010 23:17:17 / efv

Væntingar og vonbrigði

Eftir allavega tilbreytingu í æfingum undanfarið fannst mér ég vera í þokkalegu stuði með mig. Hef verið í badminton, ketilbjöllum með virkum teygjum plús auðvitað hlaup, hjól, sund og lyftingar. Verandi með sjálfsöryggið á nokkuð góðu stími lét ég tala mig í að taka þátt í Þorláksmessusundi Breiðabliks. Þvílík mistök. Fjandinn hafi það að ég geti synt eitthvað hraðsund í sundlaug. Var að synda á móti afreksfólki í sundi og ég varla syndur á skriðsund. Það má alveg kalla þetta innlegg í reynslubankann en ég veit það ekki. Ég ætla mér ekkert að fara að æfa mig í því að vera lúser! Hafandi sagt þetta er um tvennt að velja. Æfa eða æfa. Það er víst ekki í boði að gefast upp þannig að þá er bara að taka sér tak og synda af einhverju gagni. Verð bara að fara vel með mig og slaka á álagi á axlir í kjötvinnslunni. Nú eftir vonbrigðin á Þorlák kíkti ég í lóðin á aðfangadag og þar var aðeins meira stuð á mér (enda hefur svo sem ekki vantað upp á æfingarnar þar). Ætlaði að taka brjóst og eitthvað svona en eftir upphitun í róðravélinni leist mér þannig á að ég mundi bara vera í einhverju dútli. Fór á bekkinn og fór í mörgum lyftum í 90. Fannst það létt og prófaði 95 sem var líka bara fínt. Talaði við Hemma formann IKF-Metal, sem var að taka jólaæfingu þarna, og bað hann að spotta fyrir mig í 100 kg. Vessógú, 100 niður og upp aftur og það þrisvar sinnum. Hafði sett mér 100 kg. sem markmið fyrir árið og það hafðist. Var reyndar með önnur markmið líka sem ekki gengu en svona er það bara með þau. Annað engu minna og sumir mundu segja meira var að klára fullan Ironman. Hafði verið með tvö markmið þar, klára og undir 12. Þau höfðust bæði. Langaði að ná 10 km undir 40 mín. en það hefst ekki héðan í frá þar sem ég er búinn að vera veikur og verð að vinna á morgun gamlársdag. Gæti reyndar tekið æfingu í salnum og reynt við dedd markmiðið en það er hvort eð er bara formsatriði þannig að ég veit ekki hvort ég nenni því. Það er þá eitthvað að dunda sér við á nýju ári.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2010 22:44:01 / efv

Ironman Florida +

Sat með lappann í fanginu sunnudaginn 7. nóvember til að freista þess að skrá mig á IM Florida 2011. Það gekk og tek ég því þátt í IM þar 5. nóv. 2011. Núna veit ég hvað ég er að fara að gera og veit hvað þarf til að taka þátt í svona. Bara það að hafa ekki hjólað nema tæplega 2000 km. á ítalanum allan tímann fram að Challenge Copenhagen segir ýmislegt um hversu illa ég stóð mig í undirbúningnum. Ef ég hefði ekki farið að æfa með Vigni hefði ég varla klárað keppnina hvað þá á undir 12 tímum eins og raunin varð. Er að byrja æfingar, kviðslitsaðgerðin tafði aðeins. Er eitthvað að streða við að æfa samkvæmt púslmæli en yfirleitt þegar ég ætla að brettast í einhverjum rólegheitum missi ég mig og fer upp á tempo. Hef reyndar æft nokkuð oft á þrekhjóli og náð að hækka Cadence-ið hjá mér í 100+. Af einhverjum ástæðum fæ ég ekki eins mikinn krampa í lappirnar og áður. Passa reyndar vökvunina mjög vel, drekk mikið á meðan ég hjóla og reyni að vera ekki mikið léttari þegar ég kem af hjólinu en þegar ég fór á það. Hef ekki nennt að byrja með ítalann inni en þarf nú að fara að gera það. Axlirnar eru ansi aumar eftir sundæfingabúðir síðustu helgi. Fór til Eyglóar sjúkraþjálfara sem sagði að festurnar væru ansi bólgnar og mælti með hvíld frá lyftingum og Voltaren. Djöfull vont að liggja á öxlunum þegar þetta er svona. Ketilbjölluæfing hjá Pedda glímukóngi var frábær tilbreyting. Ömurlega stirður og asnalegur. Peddi með fullt af fínum teygjum og verð ég sennilega eins og fimleikastjarna eftir smá tíma með honum. Vel hefur gengið í lóðunum. Tvær bætingaæfingar í röð á bekknum og er að byrja að dedda aftur. Áramótamarkmiðið á bekknum stendur enn og eru axlaóþægindin bara til bóta þar sem þau ýta bara undir að ég lyfti rétt. Rólega gengur þó að tuða upp vikt í deddinu en tæknin er orðin góð að mati Valda bróður. Þegar tækning er rétt má fara að huga að þyngdum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2010 23:20:13 / efv

Ekki mikið að gerast

Tja.  eitthvað aðeins mjakast en ekki alveg jafn vel og ég vildi.  Skurðurinn hefur haldist lokaður og bólgur eitthvað að minnka en spretta þó fram við og við.  Prófaði að synda en það var ekki alveg klárt.  Teygjan er ansi eitthvað ómöguleg.

Hef verið nokkuð sprækur í kjötvinnslunni undanfarið.  Eðlilega hefur aðaláherslan verið á efri hlutann þar sem ekki gengur að æfa neðri hluta með rifinn kvið.  Árangurinn hefur verið alveg þokkalegur og er ansi líklegt að markmiðið á bekk náist fyrir áramót.  Í næstu viku ætla ég að byrja að dedda aftur og reyna að koma mér í almennilega  þyngd þar sömuleiðis.  Prófaði kreppu í dag en það er eitthvað sem verður að bíða.  Upphífingar og niðurtog eru í lagi þannig að það er stutt í fulla teygju.

Hef verið að koma sterkur inn á hjólið.  Þrekhjólast eins og enginn sé morgundagurinn og stundum eins og ég sé að fara í fótaafsag.  Í gær voru það 90 mínútur af Hills á lvl 16.  Náði að halda mér fyrir ofan 90 allan tímann en mikið fjandi var þetta erfitt.  Nú er það bara lvl 17 héðan í frá.  Ætla að fara að virkja Trainerinn  í tækniæfingar enda alveg glatað að gera þær á þrekhjóli.

Bekkur í dag og er maxið farið að fara upp í átta hröðum repsum.  Er alltaf ragur við að þyngja en næsta þriðjudag ætla ég að þyngja um 10 kg.  Hef vonandi einhvern með mér það er svo sem ekkert sem læt stoppa mig ef það verður ekki.  Sleppi bara lásum og ég er fínn. 




» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2010 23:09:48 / efv

Ekki mikið að gerast

Tja.  eitthvað aðeins mjakast en ekki alveg jafn vel og ég vildi.  Skurðurinn hefur haldist lokaður og bólgur eitthvað að minnka en spretta þó fram við og við.  Prófaði að synda en það var ekki alveg klárt.  Teygjan er ansi eitthvað ómöguleg.

Hef verið nokkuð sprækur í kjötvinnslunni undanfarið.  Eðlilega hefur aðaláherslan verið á efri hlutann þar sem ekki gengur að æfa neðri hluta með rifinn kvið.  Árangurinn hefur verið alveg þokkalegur og er ansi líklegt að markmiðið á bekk náist fyrir áramót.  Í næstu viku ætla ég að byrja að dedda aftur og reyna að koma mér í almennilega  þyngd þar sömuleiðis.  Prófaði kreppu í dag en það er eitthvað sem verður að bíða.  Upphífingar og niðurtog eru í lagi þannig að það er stutt í fulla teygju.

Hef verið að koma sterkur inn á hjólið.  Þrekhjólast eins og enginn sé morgundagurinn og stundum eins og ég sé að fara í fótaafsag.  Í gær voru það 90 mínútur af Hills á lvl 16.  Náði að halda mér fyrir ofan 90 allan tímann en mikið fjandi var þetta erfitt.  Nú er það bara lvl 17 héðan í frá.  Ætla að fara að virkja Trainerinn  í tækniæfingar enda alveg glatað að gera þær á þrekhjóli.

Bekkur í dag og er maxið farið að fara upp í átta hröðum repsum.  Er alltaf ragur við að þyngja en næsta þriðjudag ætla ég að þyngja um 10 kg.  Hef vonandi einhvern með mér það er svo sem ekkert sem læt stoppa mig ef það verður ekki.  Sleppi bara lásum og ég er fínn. 




» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2010 22:20:24 / efv

Góður dagur

Eftir ansi mikla tregðu á leiðinni til bata hefur skurðurinn verið til sæmilegs friðar síðan á laugardag.  Fór á föstudag og tók aðeins á lóðunum en fann strax illa fyrir skurðinum og hætti fljótlega.  Var skíthræddur um að ég hefði klúðrað einhverju.  Það virðist ekki vera.

Mikil vinna undanfarið hefur valdið talsverðum óþægindum á sárinu sjálfu en þegar ég næ að stilla mig inn á að það séu bara óþægindi sem engu skipta er þetta allt í lagi. 

Fór svo í dag í Laugar og var bara svona ljómandi glettilegur.  Leist best á brjóst í dag og tók alla þrjá bekkina, handlóð og fluggræjuna góðu.  Einhver reitingur svo með til að klára sig.  Verst hvað bekkir og allt þeim tengt er leiðinlegt eitthvað í Laugum.  Lóðin laf laus á stöngunum og allt eitthvað ekki nógu gott.  Glatað líka að ekkert er að marka þyngdirnar.

Hitti Corinnu á hjólinu og hjólaði við hliðina á henni eina 20 min. æfingu.  Stillti á hills á lvl 15 sem ég hækkaði síðan í 16.  Cadence í 95.  Til að gera þetta enn erfiðara andaði ég bara með nefinu, stífluðu, á erfiðu köflunm.  Þegar ég kláraði síðasta interval-ið átti ég ekkert eftir.  Alveg frábært.  Jens að taka kreppuna, hress að vanda.

Djöfull er Marius Pudzianowski rosalega rosalegur. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2010 21:06:27 / efv

Á batavegi

Þrátt fyrir að hafa forðast hverskyns átök í rúma viku tókst mér að rífa sárið upp.  Blæðir alveg ótrúlega úr því núna næstum viku seinna og gengur afskaplega illa að stoppa þetta.  Kíkti á Höskuld járnbróðir á mánudaginn og sagði hann að það væri ekkert annað að gera en bara bíða.  Blóðgúlpur hafði orðið til í sárinu og var hann ástæðan fyrir þessum miklu blæðingum.

Fór á æfingu í dag í fyrsta sinn í rúmlega tvær vikur.  Ætlaði að skokka á brettinu en það var of vont.  Snaraði mér þá á þrekhjól og tók þungt hills program í hálftíma.  Þvílík spennulosun!  Gæti best trúað því að nú grói bara allt og verði fínt hið snarasta.  Að hanga heima í aðgerðarleysi getur ekki verið gott.

Nú er bara að taka vel á því á hverjum degi og borða vel og þá kemur þetta á nó tæm at all.  Læt bara lóðin eiga sig í bili og þá er ég í góðum málum.

Vonandi get ég farið að synda sem fyrst svo ég missi nú ekki alveg af góðum sundsprettum í víkinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2010 23:51:29 / efv

Uppfærsla part3

Jæja enn einni aðgerðinni lokið.  Gilmore hægra megin núna.  Gilmore verandi tegund kviðslits sem Íslandsmeistarabarnið kallar þetta gamalmennabelg en hvað eins og það viti.

Sigurður Blöndal höndlaði þetta af stakri snilld verð ég að vona.  Hann er allavega hress.  Sagði mér að vera slakur í smá tíma og byrja að skokka eftir tvær vikur eða svo.  Þar sem ég skokka ekki ætla ég að bíða í þrjár vikur en fara frekar að hjóla og gera góða hluti.  Sund er í fínu og verandi letingi geri ég ráð fyrir að ég æfi gufuna stíft.  Mentolið dottið í hús þannig að þetta verður bara fínt.

Að fjórum vikum liðnum má ég svo taka á því af fullum krafti og verður það æði.  Ég ætla að reyna að láta ekki eins og bjálfi og fara eftir því sem læknirinn segir því ástandið núna er alveg ferlegt.  Þeir sem hafa lent i vandræðum með klósettferðir sökum harðsperra eftir hnébeygjur margfaldi með einhverju og þá vita þeir hvernig það gengur fyrir sig hjá mér.

Pantaði mér Specialized Rockhopper 29" gæðagrip í síðustu viku.  Fæ hann eftir þrjár, díses hvað það er spennandi.  Við Trausti fengum okkur báðir svoleiðis og fengum gríðarlegan afslátt eða um 5000 kall.  Það má fá brunn í tvö þorp í Afríku fyrir þann pening.

Skrítið að vera alveg í ljómandi formi en þola það ekki að liggja í tvo daga án þess að vera allur ómögulegur í skrokknum.  Greinilega tekur á að vera letingi.  Hafði séð það í hyllingum en er ekki viss um að ég nenni því.  Þá er nú skárra að drattast á æfingar daginn út og inn og vera allur huggulegur á eftir.  Mishuggulegur en alltaf huggulegur.

Var að spá hvort væri ekki fínt að taka gallasund í sjónum þegar færi að kólna.  Gæti verið gaman.  Frú Óaðfinnanlegt skriðsund verður bara að skamma mig af bakkanum.  Sjáum til.

Gott í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2010 21:31:47 / efv

Tveir af þremur er hreint ekki slæmt.

Er sterkari og fljótari þessa dagana en ég hef nokkurn tímann verið.  Væri alveg til í að vera aðeins þyngri og stæltari en það er kannski ekki hægt að ætlast til þess meðan ég er að hlaupa og synda jafn ákaft og ég geri. 

Hef verið að taka þungar æfingar í lóðunum og eingöngu tempo/interval æfingar á bretti.  Ætlaði reyndar að vera byrjaður að æfa með ÍR-hlaup en þar var skollið á með 10 daga hlaupafríi þannig að ég dundaði mér þetta bara sjálfur.

Æfingarnar í Big Bens Garage hafa gengið vonum framar.  Ferlið er mjög gott og ánægjulegt að þegar ég hef dottið úr því finn ég hvað lyftan verður léleg.  Síðustu æfingar hafa endað með keðjum sem er algjörlega geggjað.  Svimi og vellíðan eftir hvert sett.  Valdi hefur ekki viljað fara upp með mig í þyngdum heldur lagt áherslu á ferilinn og sprengjuna upp.  Keðjurnar eru frábærar í það.  Hef mest tekið 158 x 5 með keðjunum sem var alveg rosalega fínt en sat í mér í smá tíma.

Í gær var það síðan brjóst/bekkur og þar var sama sagan.  Hallandi upp og niður og var upp sérstaklega góður með 70 x 5.  Hingað til hafa axlirnar stoppað mig en þær voru ekki vandamál í gær.  Náði síðan fínum öfugum bekk með margar 80 lyftur.  Gufan á eftir einstaklega notaleg.

Í kvöld var það síðan brettið.  Líklega var þetta Fartlek hjá mér allavega var þetta hrikalega gaman.  Slipknot hressir að venju og ég lét þá stjórna tempoinu hjá mér.  Fór enda svo að ég var farinn að gusast þetta á 17 km/h og það eitthvað meira en sprett. 

Aðeins farinn að finna fyrir þreytu en ég er nú að komast í svo góða pásu þannig að það er allt í lagi.

Kvíði því aðeins að þurfa að stoppa í 4 vikur.  Dett ég alveg úr gír eða næ ég að halda mér motiveruðum á tilhlökkun einni saman?  Rjúpan byrjuð þegar ég má byrja að gera eitthvað þannig að væntanlega verður tímabilið rýrt í ár.  Er reyndar svo heppinn að komast í túrinn með Jóni og Ingvari fyrir austan þannig að væntanlega verður eitthvað til af rjúpunni í ár.

Keypti mér Recovery blöndu í Hreysti.  Díses að borga 6k fyrir lítinn fjandans dunk.  Ég held að menn séu aðeins að missa sig hérna.  Héðan í frá sé ég um þessi mál sjálfur eins og ég gerði fyrir hrun.  Bodybuilding.com er vefurinn með fyrirtaks úrval af fæðubótarefnum.  Reyndar er flutningurinn hingað alveg djöfullegur þannig að kannski ég reyni að finna eitthvað í Evrópu.

Við Trausti ætlum að fá okkur alveg ljómandi æðisleg Specialized Rockhopper hjól.  29" dekk, ekkert minna dugir til að komast hratt yfir og verðum við án nokkurs vafa gríðarlega flottir þegar við fáum gæðingana.  Trausti sá um samningagerðina þannig að ég bíð bara spenntur tilbúinn með veskið.  Hell yeah.  Það verður gaman.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2010 22:16:35 / efv

Stutt æfingalota fyrir pásu

Nú er búið að ákveða dag fyrir uppskurð.  23. sept er dagurinn og þá verður allt voða gott.  Siggi Blöndal ætlar að draga úr pússi sínu fína nál og spotta og rumpa mér saman að innan.  Ég er með s.k. Gilmores Groin sem er nokkurs konar kviðslit.  Kviðvöðvi er rifinn og svona eitthvað ómögulegur og getur það verið alveg djöfullegt í átökum sem reyna á kvið eins og  t.d. hlaup, sund, hósti, hlátur svo ekki sé talað um kynlíf.  Það síðast nefnda slapp nú alveg til þar sem megnið af tíma manns hefur farið í æfingar og annað þeim tengt.

Nú á semsagt að ráða á þessu bót og get ég þá orðið eins og Casanova sjáflur fyrir utan kannski lekandann og hvað hann var lítill og asnalegur og gat ekki rassgat í þríþraut.  Hann óð allavega í kellingum.  Lucky bastard.  Ég ætti að vera orðinn þokkalegur til brúks rúmum fjórum vikum eftir aðgerð og verður það væntanlega um það bil sem mínir nánustu losna af geðdeildinni eftir að þurfa að umbera mig æfingalausan í nokkra daga.

Það sem ég hef verið að gera undanfarið hefur verið alveg merkilega kraftmikið eitthvað.  Mér finnst ég í alveg ógnar formi og er enn að bíða eftir "down" ferðinni eftir Köben.  Hún lætur eitthvað á sér standa og ég æfi sem aldrei fyrr fyrir utan hjólið.  Ég hef ekki nennt að koma mér af stað á því.  Eitthvað jafnvægi virðist vera að koma á þyngdina hjá mér og virðist ég ætla að í 75 kg. sem er allt of lítið. 

Lyftingar ganga mjög vel.  Ég er allur að koma til og er búin að fara einu sinni í BBG (Big Bens Garage) með Valda.  Bollan kíkti inn og tók bekk meðan ég deddaði.  Valdi vildi ekki að ég reyndi neitt á mig og lét mig taka 120 cirka þúsund sinnum.  Ég fékk ekki einu sinni harðsperrur af neinu gagni.  Þá er nú beygjan skemmtilegri hvað þær varðar.  Bekkinn er ég bara að dunda mér í einn í World Class enda sést það vel á þyngdunum.  Munar öllu að gera þetta af einhverju viti en ég hef bara ekki tíma í Kjalarnes æfingar oft í viku.

Tattoo-ið er allt að koma til og ég má fara í sund.  hef farið nokkrum sinnum og synt slatta en þar sem Corinna er úti nenni ég ekki í sjóinn.  Vantar bæði félagsskapinn og öryggið af því að vera ekki að slæpast þetta einn.

Stefnumót við Remi í fyrramálið og ég því farinn í rúmið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2010 14:11:52 / efv

Öfgar

Fór á ball/tónleika með Gildrunni í gærkvöldi.  Nokkuð sem ég hef ekki gert mjög lengi og kem ekki til með að gera í langan tíma héðan í frá.  Fullt af misdrukknu fólki að óska mér til hamingju með árangurinn í Ironman, voða gaman.  Eða kannski ekki.  Það er nefnilega ekkert hrós fólgið í því að láta þvoglumælta manneskju segja þér hvað þú sért mikill nagli og öfgapinni. 

Öfgarnir liggja í því að setja sér markmið og leggja talsvert á sig til að ná þeim.  Það þykja aftur á móti ekki öfgar að drekka frá sér ráð og rænu og hittast svo illa til farinn til heislunnar í ræktinni á mánudegi til að "refsa" sér fyrir afrek helgarinnar.  Þegar ég mæti á æfingu á mánudegi þá er það til að njóta þess að vera til þann daginn sem aðra.

Búið!

Var að byrja á fótunum í dag.  Upphitun var 2km. róður annan daginn í röð.  Hrikalega hressandi, 7:44.  Dedd að 120 og beygja að 90.  Gerði margar mjög léttar endurtekningar til að stilla mig af og koma mér í réttar stellingar.  Hoppaði síðan 3x8 með 44kg.  Hjartaáfallið á leiðinni þannig að ég fór bara í bleiku æfingarnar hans Valgeirs til að klára.  Var að reyna einhverjar kviðæfingar en hlaupin í gær útilokuðu það alveg.  HFF.

Maður verður að vera hress.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2010 22:01:57 / efv

Járnleysi

Takmarkinu náð.  Meðganga upp á níu mánuði þar sem æfingar voru lélegar vel framan af en tóku síðan rækilega við sér með vorinu.

Þessi tími hefur oft verið ansi erfiður, ég var alveg viss um að ég mundi drulla á mig í keppninni og leitaði talsvert af afsökunum til að hætta við.  Samt var ég líka ákveðinn að fara þó svo að það yrði erfitt.  Ég meira að segja hafði áhyggjur af tímamörkum ;-)

Svona hefur eitt og annað verið að trufla mig alveg eins sennilega öll systkyni mín til járnsins.  Svona keppni er svo mikið verkefni að það væri óeðlilegt annað en að vera með efasemdir um eigið ágæti.  Það var alveg hræðilegt nokkrum dögum fyrir keppni að komast að því að sundgallinn væri of lítill og ég gæti ekki andað í honum.  Það eins og annað bjargaðist þó þökk sé Corinnu sem rak mig til að æfa mig í honum.  Á stuttum tíma var ég farinn að æða um Nauthólsvíkina á harðakani.

Núna er þetta búið, tattoo-ið komið á hægri kálfann og hvað þá?  Fór 10 km. á 50 mínútum í Reykjavíkurmaraþoni og hef verið að taka soldið á lóðunum en hvað?  Er vonandi að fara í aðgerð vegna kviðslitsins sem setur mig í stopp í fjórar til sex vikur þannig að ekki næ ég Poweraid hlaupunum í vetur frekar en í fyrra.  So what!  Ég geri bara eitthvað annað.  Það er voða gredda í mér að fara með til Köln næsta haust og hver veit nema ég geri það bara.  Svo er líka voðalega girnilegt að dedda sig bara upp með Valda bróðir.  Það gæti nú aldeilis verið stuðið en ég hleyp nú sjálfsagt ekki mikið í því ástandi.

Eftir svona verkun og árangur sem fór eiginlega fram úr eigin væntingum finnst mér ég geta allt.  Reyndar var nú óttalegur aumingi í löppunum áðan á lóðaríinu en það eru nú sjálfsagt bara restar frá Köben.  Andleysið var reyndar algjört og nennti ég ekki að gera neitt.  Kannski ég þurfi að slaka aðeins á og koma mér svo í gang aftur eða taka mér bara tak og fara að gera eitthvað.  Eins og veðrið er er ekki mikið að því að rúlla austur á Þingvelli eða jafnvel fá sér nokkrar Krísuvíkurpylsur.

Sjáum til

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 9203